Blautar hendur sem blogga..
Könnun
Hver af okkur verður fyrst ólétt?






09.04.2008 18:14:14 / Sigurlaug

Djammhelgi framundan:)

Jæja stelpur, nú er þessi síða alveg að leka fram yfir grafarbakkann sko, þetta gengur nú ekki!

En ég var að spá, fyrst það er nú svona almennileg djammhelgi framundan þá var ég að velta því fyrir mér hvort það væri ekki stemning fyrir að halda örlítið teiti á milli keppninnar og ballsins? Ég er til í að skaffa pleis sko, nóg pláss hérna hjá mér eins og þið vitið:d Er það ekki bara málið? Taka svolítið vel á því bara! Segjum bara 16 ára aldurstakmark, til að vera safe, haggi bara?? Er agalega spennt fyrir þessu:haha:

Hvurnig lýst ykkur á það essgurnar?;)

-Silla8)

» 8 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 21:20:51 / Sigurlaug

Nýjar gamlar myndir

Ég missti mig örlítið í nostalgíunni hérna áðan og setti inn nokkrar myndir frá 2003-2004. Sumsé hápunkti gelgjunnar:lol: Good times!
Tjékkið á þessu, er í myndasöfn og "Gamlar og góðar"

Tata

-Silla:haha:



» 4 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 18:12:23 / Ullarsmokkar

vímulaus æska

Helgarferð að Laugum í Reykjadal í boði Flott án fíknar

Gleðiferð fyrir ungmenni á aldrinum 16 – 20 ára sem eru án tóbaks og vímuefna helgina 28. - 30. mars.  Leikir, útvist, kvöldvökur og fleira þar sem hinn eini sanni Ungmennafélagsandi ræður ríkjum.  Þátttakendum stendur til boða að gerast sjálfboðaliðar í starfi Flott án fíknar í kjölfar ferðarinnar.

Þátttakendur koma sér sjálfir á staðinn og taka þátt í matargerð en gisting og fæði er í boði Ungmennafélags Íslands. Þátttakendur hafi meðferðis: svefnpoka, handklæði, sundföt, góð útiföt og annað sem þeir telja sig þurfa.

Fararstjórar: Guðrún Snorradóttir, landsfulltrúi UMFÍ og Jörgen Nilsson, leiðbeinandi Ungmennabúðanna að Laugum í Sælingsdal.

Áhugasamir skrái sig á netfangið:gudrun@umfi.is.  Allar nánari upplýsingar eru gefnar í Þjónustumiðstöð UMFÍ í síma 568-2929 / 568-2925 /gsm. Guðrún 848-5917



Hvernig lýst ykkur á hahaha :D


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 15:50:30 / Ullarsmokkar

halló ástir

jæja það er komið eitthvað nýtt sístem hérna.. þurfti að taka lykilorðið af.. því gamla bara virkaði ekki...

NÝJASTA NÝTT:

SILLA Í ÖÐRU SÆTI Í SÖNGVAKEPPNI VMA OG ÞURA LLÍKA!!

STEBBI BRÓ MATTA VANN..

og einhver töff hárgreiðsla í þriðja hehe... brynja?

anyway.. partý hjá sillu í byrjun mars:D? vopppívvúpp:D


- gerður, en ekki hver? hehe

» 14 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 01:05:48 / Ullarsmokkar

ba ba ba ba babababaababab ytri vík busy

Þið eruð ömurlegir bloggarar

Þið eruð ömurlegir lesendur

Þið eruð ömurlegir kommentarar..

 

djöfull er ég fullkominn eitthvað varðandi veraldarvef ullarsmokkanna?

 

Ókei þetta var smá djók útúrdúr... komið hefur í ljós að Ytrivík er ekki laus fyrr en í APRIL

 

JÁ ÉG SAGÐI APRÍL

 

APRÍL

APRÍL

APRÍL!!!

OG VIÐ MEIGUM EKKI BÓKA SVO LANGT FRAM Í TÍMAN. SEM ER ASNALEGT...

En lífið er stundum svo ósanngjarnt haha..

 

allavega.. silla bauð sig bara fram til að halda partý, lýst fólki ekki vel á það;D

 

hver veit hvenær næsti pjalli beibí er í sjallanum8) ?


» 12 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 17:20:48 / Ullarsmokkar

hvernig sándar að byrja mars með djammi?

Er fólk heitt fyrir helginni

 

1-2 MARS ??

 

hljómar svoldið girnileg helgi.. einhver sem mótmælir ? ....

 

látið í ykkur heyra fólks!!..við hringjum í næstu viku :)

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 03:56:32 / Ullarsmokkar

YTRI VÍK..hvenær er fólkið að komast?

TÍMI TIL KOMINN Á BLOGG!

 

 

 

Ytri-Vík er gamalt steinhús á þremur hæðum sem byggt var 1929 og var þar stundaður búskapur bæði til sjós og lands til langs tíma en eftir að allur búskapur var lagður af, hófst þar ferðaþjónusta árið 1983 og síðan þá hefur húsið verið í stöðugri endurbyggingu. Í húsinu eru 7 svefnherbergi tveggja- og þriggjamanna og rúmar húsið allt að 16 manns í uppbúin rúm. Yfir sumartímann er þar rekin full þjónusta við gesti og gangandi, það er að segja gisti- og veitingaþjónusta. Í húsinu er fullbúið eldhús og borðstofa sem rúmar allt að30 manns og einnig lítil setustofa, í kjallara hússins er gufubað og búningsaðstaða fyrir gesti og stór heitur pottur fyrir utan.

 

ég er að segja ykkur það.. googlið YTRI VÍK:

http://images.google.is/images?svnum=10&um=1&hl=en&q=ytri+v%C3%ADk&btnG=Search+Images

ALLIR ERU AÐ BLOGGA UM HVAÐ ÞETTA ER GAMAN..

 

Jæja drullusokkarnir mínir,

 

ákvað að taka aðeins til hérna.. síðan var heldur betur farin að rotna! Ákvað líka að hafa bara að setja uppraunalegu eigendur..við erum mest í sambandi hérna á Ak og gott að við sem erum á sama staðnum getum haft controlið yfir þessu. En jæja, nú fer að stefna að sumarbústaða ferðinni. Við förum að leggja í það að panta bústaðinn og viljum við ekki lenda í eins og síðast..vera búin að plana helgi svo er bústaðurinn upptekinn. Voru frekar mikil vonbryggði:| Þess vegna vil ég helst biðja alla, að skrifa í comment allar þær dagsetningar sem þið komist. Þá er ég að tala um grafa upp upplýsingar, hvenær miðannapróf eru, árshátíð, þorrablót .. ég býst sennilega ekki við að við förum fyrstu helgarnar í febrúar mánuði en endilega eins og ég sagði viljiði grafa eftir öllu sem þið eruð að fara að gera næstu mánuðina, við stelpurnar í VMA vinnum svo í þessu hvaða helgi henntar best.. því fyrr sem þú lætur vita (skrifar í comment) hvenær þú kemst og hvenær þú kemst ekki því meira mark tökum við á þér og sínum þér virðingu svo þú missir ekki af svaðalegasta partýii ársins.. ég held það var ákveðið að vera bara eina nótt, því það verða sko allir komnir með nóg eftir nóttina :) Auðvita er ekki pláss fyrir alla... en fólk verður að koma með dýnur og svefnpoka.. því ég held að pör gangi fyrir í herbergi hehe .. :haha:

Allavega, lýst ykkur ekki bara ljómandi vel á þetta .-) ? Þaaað er svo gaman að djamma með Vopnfirðingum.. taka gítaglamr.. taka smá heitapott á þetta.. vera ógeðslega náin..grilla jafnvel? Við barfa meigum ekki gleyma því.. við verðum svo fljótt gömul! Förum að lifa lífinu..

 

LÍFIÐ ER YNDISLEGT..SVO VAKNA ÉG OG BYRJA STRAX AFTUR AÐ DJAMMA ;)

ætli ég þurfi að taka fram hver bloggaði? Þið þekkið það á UPSILON villunum :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.12.2007 14:09:54 / Ullarsmokkar

Hvað ætlar fólk að gera?

 

Hvað ætlar fólk að gera um jólin og áramótin?

 

Hverjir verða á vopnafirði, endilega segið það og gerum eitthvað skemmtilegt, við 90 modelin erum að plana bekkjarmót en það er ekki alveg staðfest, vona samt að það gangi væri gaman að hitta alla aftur =)!

En vonandi getur einhver af okkur komið með eitthvað skemmtilegt, slúður,blogg, myndir eða eitthvað !

En koma stelpur, þið hljótið að hafa eitthvað að blogga um :D?

-Petra Sif :haha:


» 16 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 14:57:54 / Ullarsmokkar

Síðan að drepast?

 

Heyrðu stelpur, stelpur!! Við erum ekki að fara að gefast upp!

ég setti inn smá slúður þar sem það var ekki nýtt slúður síðan í Október! haha..

En ég hef svosem ekkert að segja nema, eigum við að hætta með þessa síðu eða?

Eigum við ekki að reyna að rífa þetta upp ? ;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

28.10.2007 00:33:41 / Ullarsmokkar

Hvað er að frétta af '89?

Jæja, í tilefni þess að ég hef ekkert að gera þá ákvað ég að gera svolítið sniðugt til að drepa tímann.

Þannig er mál með vexti að ég var í besta bekk sem hægt var að hugsa sér í Grunnskóla, og við höfum verið ágætlega dugleg að halda sambandi miðað við það að við erum öll þvers og kruss um landið. En hvað er að frétta af öllum?

Björgvin býr í Grindavík og er farinn að vinna á samning sem smiður, ekkert að skólast bara vinna, keypti sér nýjann bíl og lamdi eina löggu á djamminu um daginn ;) glæpamaður!

Eva er alltaf alltaf lærandi, án efa sú duglegast af okkur öllum og ég er ekkert smá stolt af henni. Hún er byrjuð að búa og eyðir miklum tíma í að kúra með kæró eins og svo margir aðrir í þessum bekk, Siggi Kross fjárfesti í einum Matiz handa dömunni í vor þannig að hún er bara aðal gellan!

Gerður er eins og Eva mikið að kúra með kæró og býr núna í stúdentagörðunum í HA því Mattilingur er í skólanum þar. Þau voru að kaupa sér fjölskyldu bíl þannig að fólk er farið að gruna ýmislegt ;) Ég og Gerður erum að reyna að vera duglegar í ræktinni, ég skal alveg viðurkenna það að hún er mun duglegri en ég!

Guðjón tók sig til og stakk sig í magann með hníf um daginn! Nei ekki var um sjálfsmorðstilraun að ræða sem betur fer, heldur er hann bara algjör klaufi ;) Guðjón er á Vopnó að vinna og keyrir um á svaka Hilux, flottur eða hvaaaað?

Helga er búin að vera stödd óvenju lengi í LITHÁEN, já ég er ekkert að grínast, hún er búin að vera þar í meira en ár og virðist bara fíla það í tætlur, hún segist vera farin að kunna helling í latháensku og það eru víst engir sætir strákar þarna!

Helgi er heima á Vopnó að vinna en samt aðalega hözzla, það má ekki sjást nýtt hold á Vopnafirði þá er Helgi strax mættur og tekur málin í sínar hendur, hann veður í þessu en stoppar aldrei lengi við á sama stað. Þvílíkur hözzler.

Kári okkar var eins og vonandi allir vita í Nýja Sjálandi í ár og kom heim í sumar við mikinn fögnuð, hann er núna kominn í MA aftur og kennir okkur nýsjálenska siði.. hann var nú e-ð að deita einhverja danska vinnupíu í sumar en núna tekur bara Sjallinn við og hefur hann sést þar með nokkrum gellum ;)

Kristjana sést aðalega bara á Bláu könnunni og kemur það fólki kannski ekki á óvart, henni er margt til listanna lagt og er það alltaf að koma meira og meira í ljós, hún splæsti í nýrri Cameru sem kom alla leið frá LA og núna tekur hún myndir af öllu.. þvílíkur snillingur hún :)

Matti er heima á Vopnó að vinna eins og er en er að fara suður eftir áramót að búa með Kittý sinni og er að fara í Iðnó. Hann er alveg brjálæðislega ástfanginn það er svona það sem ég veit mest Matti <3 Kitty, hehe 

Bjössi er heima á Vopnó að vinna og reykja hass (Nei það er ekki satt, kjaftasögur á Vopnó eru dásamlegar, haha). Hann tók sér pásu frá skólanum og slappar nú af í sveitinni, hann nældi sér nú í eitt 92 model í sumar en það er vist allt búið.

Silla er nú komin lengst af okkur öllum held ég, búin að kaupa sér íbúð og ALLES :o hún og Óli eru alveg happely ever after. Hún er í VMA og er auðvitað að meika það þar. Hún keyrir um á gamla bílnum hans Atli því hún lenti í smá slysi á hringtorgi um dagin, HEHMMM

Símon er kominn í Lauga, byrjaði vistina vel þar og var næstum rekinn eftir 3 daga. FLOTT SÍMON. Svo hélt hann partý heima hjá sér um daginn og greyjin Sverrir og Hrabba þurftu að þrýfa allt eftir alla, símon.. kommon! Haha held hann sé bara rólegur í kvennamálum, án þess þó að vita það!

Stebbi snillingur velti ástinni sinni (Súkkunni) um daginn og skemmdi hana töluvert, en hún er víst á batarvegi og hann ætlar ekki að gefa hana upp á bátinn! Hann er í VMA auðvitað að meika það.. held hann sé líka agalega rólegur í kvennamálum.

Smári var að kaupa sér nýjann glæsilegann bíl, Opel Astra, alveg bara flott, hann á pottþétt eftir að hössla útá hann. Hann er heima núna að vinna hjá B&V, flottur á því og kíkir annaðslagið í heimsókn til okkar hingað :) Smári, áttu sígarettu ? ;)

Unnar er staddur á Sauðárkróki í skóla og ég er búin að heyra frá ansi mörgum að hann sé aðal maðurinn þar! Enda ekki skrítið, algjör meistari þar á ferð. Held honum líki bara rosalega vel þar og gengur bara vel :)

Ég? Ég er bara komin í VMA og að fíla það misvel, bý með Hædý Klum hérna í Grundargerðinu og það er geðveikt. Vinn hjá Capacent Gallup og kúri með kæró þar inn á milli :D

Örn er á Laugum eins svo ótrúlega margir aðrir í ár. Hann er hættur að nenna þessu kvennarugli og er bara laus og liðugur (Eða kannski langt frá því að vera liðugur). Famelían hans er bara flutt úr plássinu en hann er AUÐVITAÐ duglegur að koma heim.

Örvar er að stinga okkur öll af í ástarmálunum og er búin að trúlofa sig !! Til hamingju vinur :) heyrst hefur að hann kunni ekki að keyra og hann bara keyrir á og útaf trekk í trekk. Hann er staddur á Blönduósi hjá kæró er ég að heyra.. annars hef ég ekki heyrt í honum lengi.

Jahá, svona er það nú.. þetta gat ég skrifað allt án þess að spurja mann né prest um neitt.. sem sýnir bara að við erum að halda ágætu sambandi!

Það væri geðveikt að halda smá hitting einhverntíman bráðum, bara spurning hvenær hentar best, Jól, páskar, sumar?

Þið ráðið :)

Segjum það gott í bele!

Kv. Úr Grundargerði 7D, endilega kíkið í kaffi!

Þura Björg.


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.10.2007 18:20:35 / Ullarsmokkar

KA?

Eitt stutt hérna úr Grundargerðinu ! Við hefðum verið í bústaðnum núna ef að það hefði ekki allt klikkað, SVEKK! En fólk lætur það ekki stoppa sig, Sláturhússlútt heima núna og örugglega brjálað djamm á Vopnó! Væri alveg til í að kíkja skooo.. Smári, Guðni & Lára eru hérna núna. Guðni er að sækja nýja flotta bílinn sinn og þeir ákváðu að krassa bara í nótt, við erum með steik í ofninum eins og stendur og það verður svaðalegt matarboð hérna á eftir, geðveikt! Annars bara róleg helgi, bíó og rúntur og í kvöld og mikið tjill!

 

En fólk, er ekki máið að sameinast á NESK um næstu helgi á Pál Óskar? Hann er bæði kvöldin, verður án ef kreisí, ég ætla allaveg að mæta!

Við erum yfir og út, lambalææææri, mh!

kv. Þura, Hædý, Lára, Smári & Guðni!

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 18:21:13 / Ullarsmokkar

Hætt við bústaðaferðina..

eða ekki hætt við hana, henni var bara frestað :)

 

Helvítis 90 manna hópurinn tók bústaðina alla, svo nú er bara planið að plana nýja ferð og vera BÚNAÐ FÁ BÚSTAÐINA. En taka skal fram að við höfðum samband mjög tímanlega, það gerði þesi hópur greinilega líka:/ ..urr. Allavega, hvenær myndi henta ykkur? í kringum afmælið hjá Evu og Þuru? Nóvember sumsé.. þá er reyndar soldið stutt í próf en samt, taka gott djamm fyrir prófin:)?

Svo er ég nú að verða 19 ára í Janúar... bara svona.. eitthvað.. getum farið í Janúar? Mér finnst það persónulega of langt... mig langar að hafa partý fyrir áramót og aftur eftir ;);) ..ég væri til í nóv, þá lok nóv eða svo .. gætum skoðað hvernir bústaðirnir eru skipulagðir.

 

En jæja, tjáið ykkur... engin með ferskt slúður frá helginni? hlítur nú eitthvað krassandi að hafa komið fyrir ?

 

 


 

blaaa - gerður  


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 10:17:59 / Ullarsmokkar

babb í bát já..

Jæja..fólk!

Það hefur komið smá leiðindababb í bátinn. Eins og Sigurlaug sagði í síðasta kommenti á seinstu færslu þá fengu þau að vita að bústaðirnir væru bókaðir af einhverjum 90 mannahóp. Öll von er þó ekki úti enn.. því þau ætla að láta þau vita fljótlega hvort fólkið staðfesti eða ekki..

Sem þýðir að við erum bústaðalaus.. í augnablikinu. Við erum samt að leita á fullu. Illugastaðir eru 6 mannabústaðir. Þeir eru mjög litlir. Ég og Matti fórum þangað í Mars, s.l. og sváfum við á svefnsófa inn í stofu.. það er alltof lítið eiginlega. Eitt herbergið var með tveimur rúmum(sumsé koja) hitt var eitt hjónaherbergi. Pínu lítill eldhúskrókur.. og plús það verða náttla allir að gista því þetta er langt frá bænum...

En fólk.. nú verða allir að gjöra svo vel og .. og reyna að finna samastað fyrir þessa helgi. Hann má ekki vera of nálægt Akureyri. því mín reynsla allavega af því fer kvöldið bara að bíða eftir því hvenær löggan kemur og slúttar partýinu.. það er of nálægt og hvarta nágrannar og þannig.. En meina, ókei við erum kannski of mikið að spá í stærð.. hvað höfum við nú oft komist mörg fyrir í húsinu hjá alla pétri.. þokkalega mörg allavega! þannig.. það er aðalega babb með gistið og það.. vonum náttúrulega að Ytrivík losni... en hvað ef þessi 90 manna hópur ætlar bara að vera?.. svo við biðjum ykkur öll að leggja haus í bleiti og leita af samastað og láta sigurlaugu vita.

hugmyndir sem eru búnar að koma :

http://www.leifsstadir.is/

http://www.nat.is/travelguide/akureyri_gisting.htm#cottages

http://www.sveit.is/disp.asp?num=380

bestu kveðjur. Gerður


» 14 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 19:54:03 / Ullarsmokkar

Sumarbústaðarferð

 

Jæja, þá er komin dagsetning á sumarbústaðarferðina! Ætlum að reyna að fá bústað laugardaginn 20.október. Fáum að vita það á sunnudaginn hvort hann verður laus þá, en ef ekki þá bara reddum við okkur einhvern veginn.

Fylgist bara með, allar upplýsingar verða settar hérna inn þegar nær dregur.

Kominn spenningur í liðið eða? :D

 

Þeir sem eru pottþétt memm kommentið. Verðum að sjá hvað koma margir

-Silla

 


» 24 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 15:12:22 / Ullarsmokkar

Sumarbústaðaferð í Október? Hver er geim?

Hæ stelpur :)

Eruði geiiim einhvertíman í Október.. líklega. Segja til um helgi væri fínt hver hentaði ykkur vel, en við skulum bara stefna á Október. Svo tilvalin mánuður.. væri gaman ef allar kæmust og eftil vill stelpurnar fyrir sunnan líka.. Við erum bara að tala um sumarbústaðaferð fyrir voppa og vini og maka :) Íllugastaðir eru heitir en flottast væri að geta fest þetta bara niður sem fyrst, svo þetta sé bara ákveðið. Við gerðum alltof lítið öll saman í fyrra svo nú er tíminn .. ætlum að vera verulega duglegar í ár og næsta ár.. og öll árin okkar til fimmtugs!! Er það ekki :)??

En endilega segið mér hvaða helgi myndi henta ykkur best!

Veit nú að ein dúllan af okkur á nú afmæli 24.okt.. hún Kristjana. Svo hún getur litið á þetta sem smá afmæli fyrir sig. En við erum með ákveðinn hóp í huga og það vita allir hverjir það eru.. stelpurnar fyrir sunnan (Gudda,Ragna,Lára,Elva) Er ég að gleyma einhverri? Ef svo er ..þá bara kemur hún.. svo bara svipðaur hópur og var hérna fyrir norðan síðustu helgi.

Svo auðvita er VOPNFIRÐINGAR velkomnir.. en veit ekki hvort allir fái gistingu en við eigum eftir að festa þetta allt.

 

Tjáiððð ykkur!

-gerður


» 21 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5